find us on facebook

HnappurBLUE2

hb

banner_1.jpg
 
Verið velkomin á heimasíðu Ægis
Jólaskemmtun Reykjavíkurfélagana Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Föstudagur, 20. desember 2024 23:14

Reykjavíkurfélögin héldu sameiginlega jólaskemmtun í Laugardalslaug þann 14. desember.

Jólaskemmtunin var í tveimur hlutum hlutar þar sem fyrri hlutinn var jólametamót og svo jólaskemmtihluti á eftir.

Þátttakendur voru 199 í heildina og af þeim voru 41 sundmenn frá Ægi og sýndu yngstu iðkendurnir hvað þeir voru búnir að læra í vetur og eldri sundmenn kepptu í blönduðu boðsundi með núðlur.

Jólasveinninn kom með glaðning handa krökkunum svo var synt í kringum jólatré og var svo endað á happadrætti með fjöldann allan af vinningum.

Það var því mikið fjör og gleði á sameiginlegri jólaskemmtun Reykjavíkurliðanna.

IMG 3984

IMG 3983

IMG 3982

E5991061-F256-474E-9220-A5E138C1A136

 
ÍM25 8.-10. nóvember 2024 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Fimmtudagur, 07. nóvember 2024 17:26

Sundfélagið Ægir syndir sem hluti af liði Reykjavíkur á Íslands- og Unglingameistaramótinu í 25m laug sem fram fer í Ásvallalaug, í Hafnarfirði, helgina, 8.-10. nóvember 2024.

Sundráð Reykjavíkur sendir frá sér sameiginlegt lið Reykjavíkur sem er samansett af Sunddeildum KR, Fjölnis og Ármanns sem og Sundélagsins Ægis. Það eru 41 sundmenn sem synda fyrir Reykjavík á ÍM25 2024 og þar af eru 18 frá Sundfélaginu Ægi.

Hægt er að fylgjast með úrslitum hér: https://live.swimrankings.net/43947/

Einnig verður streymi alla helgina hér : https://www.sund.live/channel?name=im25


Áfram Reykjavík!

reykjavik

 
Nettó mót Ægis 12. okt Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Laugardagur, 05. október 2024 10:21

Nettó mót Sundfélagsins Ægis verður 12. október fyrir krakka 13 ára og yngri.

Frábært mót fyrir sundmenn sem eru að synda sín fyrstu sundtök á móti.

Mótið er í tveimur hlutum og verða veitt þátttökuverðlaun til 10 ára og yngri í 1. hluta. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sæti í einstaklings greinum í 11 ára og yngri og 13.ára og yngri í öðrum hluta. Aðeins eru veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í boðsundgreinum. Ekki eru veitt sérstök verðlaun í flokkum fatlaðra.

Sú nýbreytni verður á þessu móti, að það verða innheimt þátttökugjöld í stað stungugjalda.
Allar upplýsingar veitir Berglind Ósk Bárðardóttir, yfirþjálfari Sundfélagsins Ægis í tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Við hvetjum alla Ægisforeldra til að hjálpa til við mótið hvort sem það eru dómarstörf, sjoppan eða annað.

Smellið hér til að skoða starfsmannaskjalið til að skrá sig í verkefni.

Ægis keppnisfatnaður verðir til sölu í sjoppunni. Hægt er að skoða hann nánar með því að smella hér.

start

 
Æfingar haustið 2024 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Þriðjudagur, 03. september 2024 20:48

Nú eru æfingar komnar á fullt í öllum hópum.

Æfingatöflu vetrarins má finna með því að smella hér.

Það er ennþá laust í nokkra hópa og því er um að gera tryggja sér pláss sem fyrst.
Skráningar og nánari upplýsingar um alla hópa er að finna með því að smella hér.

kolfinna baksund



 
Fatnaður Ægiringa Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Fimmtudagur, 03. október 2024 01:00

Sundmenn og starfsmenn félagsins skulu ávallt leitast við að koma fram fyrir hönd félagsins í fatnaði sem merktur er Sundfélaginu Ægi. Fatalínu Ægis 2024 má sjá hér á myndinni.

Hægt er að panta föt með ví að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og þegar pöntun hefur verið staðfest má greiða fyrir föt með því að leggja inn á reikning félagsins, setja nafn sundmanns í skýringu og senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Framvísa skal svo kvittun þegar fötin eru sótt.

fatnadur24

 
 

Á döfinni:

WorldClass

 

  SW